7/27/2006
12/15/2005
ÍHAAAAAAA......
Já góðir hálsar nú eru prófin loksins búin og ég er orðin viðræðuhæf aftur .... eða það held ég allavega.. Nú er bara um að gera taka fram skrúbbinn og jólatónlistina og byrja að þrífa aðeins í litla kotinu :) En annar eru viðburðarríkir dagar framundan, það er jólasaumó í kvöld, jóladjamm hjá kennó á föstudaginn og svo á laugardaginn er ég að fara í útskrift og svo í afmæli um kvöldið :) Þannig að það verða sko ekki mikil rólegheit þessa helgina úfffff. En ég ætla nú að fara koma mér í jólagjafaleiðangurinn svo fólk fari ekki í jólaköttinn, gangi ykkur vel sem enn eru í prófum, annars bara góða skemmtun í jólaundirbúiningnum :)
Hafið það gott, kveðja jólaálfurinn
12/06/2005
Sælir kæru vinir !!!
Já það er svo sannarlega kominn tími á að skrifa smávegis um það sem kellan hefur verið að bralla undanfarið. Þetta byrjar á landsliðsferð til Ítalíu, hún heppnaðist bara mjög vel og náðist markmiðið okkar, sem var að koma okkur áfram í umspil fyrir EM. Þaðan var ferðinni heitið til Danmerkur þar sem ég fór að hitta hana Tinnu mína og hjálpa þeim að flytja í nýja flotta húsið þeirra í Óðinsvé. Það var rosa gaman í danaveldinu, ég fór einnig að heimsækja Árhúsargengið allt, Hjalta og co, Sæþór og co og Bigga litla hehe. Ég skellti mér með lestinni frá Horsens og Sæþór og familýa kom að sækja mig, síðan brunuðum við í nýja húsið hjá Hjalta og Lindu ekkert smá flott hjá þeim og gæddum við okkur á dýrindis pizzu. Svona inn á milli kíkti ég aðeins í búðir í smá jólagjafaleiðangur og borðaði á mig gat á frábærum kjúklingaréttum hjá Tinnu og Dadda nammi namm og knúsaði hana Emelíu í leiðinni :) Ég gerðist einnig svo fræg að fara á handboltaæfingu með Horsens vá það var bara gaman að upplifa þetta, þetta var rosa flott og stór höll og greinilega mikið lagt í liðið.
En það var mjög gott að koma aftur á klakann og kúra í rúminu sínu. Nú bíður mín bara próflestur og verkefnaskil þannig að það er nóg að gera. Fór einmitt í fyrsta prófið mitt í dag þannig að það eru aðeins tvö eftir jibbý :)
Það er stór dagur hjá henni litlu systur minni því hún er tvítug í dag skvísan, og sendi ég henni knús og kossa til eyja og vona að dagurinn hafi verið henni góður :)
En nú kemur einn stuttur brandari fyrir hann Hjalta Jóns í DK ;) þessi er snilld ....
Hanskarnir
Ungum manni langaði til að kaupa afmælisgjöf handa elskunni sinni.Þar sem að þau höfðu ekki verið lengi saman þá ákvað hann eftir mikla íhugun að hanskarværu rétta gjöfin: rómantískt en ekki of persónulegt. Í fylgd með yngri systur kærustunnar fór hann og keypti par af hvítum hönskum. Systirin keypti sér hinsvegar nærbuxur. Þegar afgreiðslumaðurinn var að pakka inn þá ruglaði hann þessu saman og systirin fékk hanskana en kærastan fékk nærbuxurnar. Án þess að athuga innihaldið þá innsiglaði ungi maðurinn pakkann og sendi til kærustunnarásamt miða sem á stóð: Ég valdi þetta af því að ég tók eftir því að þú hefur ekki haft það að vana að klæðast þessu þegar við förum út á kvöldin. Ef systir þín hefði ekki hjálpað þá hefði ég valið löngu með tölunum en hún klæðist styttri sem er auðveldara að ná af. Þetta er í ljósum lit, en konan ég keypti þetta hjá sýndi mér parið sem hún hafðiverið í síðastliðnar þrjár vikur og það sá varla á þeim. Ég lét hana máta þetta sem ég keyptiog það fór henni mjög vel. Ég vildi að ég gæti verið hjá þér til að vera sá fyrsti sem hjálpaði þér í, þar sem að það leikur enginn vafi á því að aðrar hendur munu snerta áður en ég hef tækifæri á því að sjá þig aftur. Þegar þú ferðu úr, mundu þá eftir að blása í þær áður en þú leggur þær frá þérþar sem að þær munu náttúrulega vera nokkuð rakar eftir notkun. Hugsaðu þér bara hvað ég mun koma til með að kyssa þær oft á komandi ári! Ástarkveðjur.
P.S. Það nýjasta er að bretta örlítið uppá þannig að smá brúskur sjáist
Ungum manni langaði til að kaupa afmælisgjöf handa elskunni sinni.Þar sem að þau höfðu ekki verið lengi saman þá ákvað hann eftir mikla íhugun að hanskarværu rétta gjöfin: rómantískt en ekki of persónulegt. Í fylgd með yngri systur kærustunnar fór hann og keypti par af hvítum hönskum. Systirin keypti sér hinsvegar nærbuxur. Þegar afgreiðslumaðurinn var að pakka inn þá ruglaði hann þessu saman og systirin fékk hanskana en kærastan fékk nærbuxurnar. Án þess að athuga innihaldið þá innsiglaði ungi maðurinn pakkann og sendi til kærustunnarásamt miða sem á stóð: Ég valdi þetta af því að ég tók eftir því að þú hefur ekki haft það að vana að klæðast þessu þegar við förum út á kvöldin. Ef systir þín hefði ekki hjálpað þá hefði ég valið löngu með tölunum en hún klæðist styttri sem er auðveldara að ná af. Þetta er í ljósum lit, en konan ég keypti þetta hjá sýndi mér parið sem hún hafðiverið í síðastliðnar þrjár vikur og það sá varla á þeim. Ég lét hana máta þetta sem ég keyptiog það fór henni mjög vel. Ég vildi að ég gæti verið hjá þér til að vera sá fyrsti sem hjálpaði þér í, þar sem að það leikur enginn vafi á því að aðrar hendur munu snerta áður en ég hef tækifæri á því að sjá þig aftur. Þegar þú ferðu úr, mundu þá eftir að blása í þær áður en þú leggur þær frá þérþar sem að þær munu náttúrulega vera nokkuð rakar eftir notkun. Hugsaðu þér bara hvað ég mun koma til með að kyssa þær oft á komandi ári! Ástarkveðjur.
P.S. Það nýjasta er að bretta örlítið uppá þannig að smá brúskur sjáist
jæja best að halda áfram að læra, góða nótt fyrir þá sem eru að skríða í bólið, kveðja Guðbjörg
11/19/2005
Sæl veriði !!
Jæja enn ein helgin komin og farin næstum því hjá mér þar sem ég er að fara vakna klukkan 4:30 í nótt úfff. En það er nú bara gaman, því við erum að fara fljúga út til Kaupmannahafnar um átta leytið og því er um að gera setja upp morgun-sparibrosið. Næst er stefnan tekin á Mílanó og þaðan þriggja tíma rútuferð að áfangastað. Ég kíkti á hótelið okkar á netinu og lofar það góðu meira að segja playstation á herbergjunum Jibbý, en svo kemur það bara í ljós. Æfingarnar hafa gengið mjög vel hjá okkur og tel ég okkur vera mjög vel undirbúnar og stemmdar fyrir komandi átök. Koma svo - Áfram Ísland :)
Við lendum í bakaleiðinni aftur i Kaupmannahöfn og ætla ég að vera eftir þar í nokkra daga til að hjálpa henni Tinnu minni að flytja. Það verður æðislegt að hitta þau, og vonandi næ ég líka að hitta Árhúsar- gengið í leiðinni :)
En ég er ekki alveg búin að vera standa mig í skrifunum þar sem ég er búin að vera á fullu í verkefnavinnu til að reyna skila af mér áður en ég fer út. Markmiðið náðist að nokkru leyti og er því námið í nokkurn veginn góðum gír :) Svo fer önninn bara að verða búin og aðeins prófin eftir. Ég er búin 15.des og finnst mér það mjög fínn tími. Þá skelli ég mér í jólagírinn og geri allt vitlaust í hreingerningunum. Ég er víst ekki alveg að standa mig í þeim núna heima segir kallinn allavega hehe ;)
En svona í lokin þá ætla ég að senda fyrirfram afmæliskveðjur til Steinunnar systir hans Óskars sem á afmæli 23.nóv og Sæþórs Orra sem á afmæli 27.nóv :)
Ég bið að heilsa í bili þar til í byrjun des :) Hafið það gott, kveðja Guðbjörg
Einn kveðju-aulabrandari :)
Starfsmannastjórinn þurfti að ráða í eina stöðu og eftir að hafa fariðyfir umsóknirnar stóðu eftir fjórir umsækjendur sem allir voru jafn hæfir.Hann ákvað að boða alla á sinn fund og spyrja einnar spurningar. Svörinmyndu ákvarða hver fengi vinnuna.Dagurinn rennur upp og allir fjórir umsækjendurnir eru saman komnir ífundarherbergi fyrirtækisins og starfsmannastjórinn spyr: "Hvað er þaðhraðasta sem þið vitið um?"Sá fyrsti svarar: "Hugsun. Mannshugurinn virkar ótrúlega hratt og maðurgetur fengið ótrúlegustu hugmyndir á nokkrum sekúndum.""Mjög gott!" segir starfsmannastjórinn. "Og þú?" spyr hann umsækjandanúmer tvö."Hmm... látum okkur sjá. Blikk augans. Það kemur og fer án þess að þúþurfir að hugsa um það.""Frábært!" segir starfsmannastjórinn. "Augnablik er einmitt mjög oft notaðsem mælikvarði á eitthvað sem gerist mjög hratt."Hann snýr sér svo að þeim þriðja sem er tilbúinn með svar:"Það hlýtur að vera hraði ljóssins," segir hann, "til dæmis, þegar ég erað fara út í bílskúr, þá nota ég kveikjarann sem er við útidyrnar og áður enég get blikkað augunum, þá er ljósið komið á úti í bílskúr. Hraði ljóssinser það hraðasta sem ég þekki."Starfsmannastjórinn var yfir sig hrifinn og hélt hann hefði fundið sinnmann. "Það er erfitt að slá út hraða ljóssins." Þessu næst snýr hann sér aðfjórða og síðasta umsækjandanum."Það er augljóst fyrir mér að það hraðasta í heimi er niðurgangur.""Ha?" spyr starfsmannastjórinn, steinhissa á svarinu."Bíddu, leyfðu mér að útskýra. Sjáðu til, um daginn leið mér ekki vel ogdreif mig á klósettið. En áður en ég gat hugsað, blikkað eða kveikt ljósin,þá var ég búinn að drulla í buxurnar."Hann var ráðinn.
11/14/2005
Hæ hæ !
Helgin róleg og góð, horfði á video á laugardagskvöldið soldið skrýtin mynd Hitchikers guide to the galaxy ekta Óskars mynd, ég veit ekki mar gat nú aðeins hlegið en ekki mikið meira en það. Fór svo í saumaklúbb á sunnudagskvöldið með eyjavinkonunum. Vá hvað það er gaman að eiga svona stóran og skemmtilegan vinahóp já mar er sko heppinn, að eiga marga vini í kringum sig sem eru alltaf tilbúnir að hjálpa manni :) jæja nóg af væmni hehe. Vikan framundan eru æfingar með landsliðinu og svo inn á milli er ég að reyna skila sem flestum verkefnum af mér áður en við förum út. Stefnan er tekin á Ítalíu og verður það eflaust mjög fín ferð.
Heyrðu Harpa og Bjarni Geir bentu okkur á fyndna síðu, thinkgeek.com þar sem hægt er að kaupa ýmislegt nördadót hehe allt er nú til.. kíkið á þetta..
Golfbrandari eða karlrembu-brandari?
Fjórir eldri menn voru búnir að heyra veðurspána fyrir aðfangadag því þeir voru vanir að spila golf einu sinni í viku og þessi dagur var fullkominn fyrir það að fara spila golf. Þeir ákváðu allir að slá til, en vissu það jafnframt að eiginkonur þeirra yrðu mjög ósáttar og þeir yrðu að finna lausn á því. Svo kom aðfangadagsmorgun og allir félagarnir saman komnir. "Það er nú meira sem ég þurfti að gera til að fá að koma strákar," segir einn vinurinn og segir strákunum frá því að
hann hafi þurft að gefa konunni sinni stóran demantshring og hún hafi verið svo ánægð að hún hafi ekkert sagt við hann þegar hann fór í morgun, en hringurinn hafi kostað 200.000
krónur. Annar þeirra sagðist hafa þurft að kaupa utanlandsferð með skemmtiferðaskipi og konan hans hafi verið svo upptekin í morgun að skoða hvað sé í boði og hvað þau ætla að gera að
hún hafi ekkert sagt þegar hann fór í morgun. Sá þriðji sagði að þetta hafi líka verið erfitt og hann hafi keypt bíl handa konunni sinni!
Sá fjórði var hissa á öllum félögum sínum hvað þeir þurftu að eyða í konurnar sínar til að komast að spila golf. "Ég vaknaði nú bara í morgun, ýtti við konunni og sagði að
þetta væri morgun til að spila golf eða stunda vilt kynlíf!. Konan sagði mér bara að taka hlýja peysu með og fór aftur að sofa!
Hafið það gott, bestu kveðjur Guðbjörg
11/10/2005
Góðan daginn !
Já haldiði að mar hafi ekki bara sofið smá yfir sig í morgun ekkert alvarlegt svo sem, en það lá við að ég mætti á náttfötunum í skólann því ég var ennþá svo sofandi ..... En ég var ekki lengi að hrista það af mér :) Já verkefnadagurinn mikli framundan nú er farið að síga á seinni hlutann og margt sem þarf að gera áður en prófin byrja, mar gefur sér nú samt smá tíma til að blogga því ég er orðin svo menningarleg hehe. En framundan er bachelor kvöld með handboltagenginu og Dominos að sjálfsögðu... alltaf í hollustinni sjáiði til :) Jæja ég er dottinn í jólafílinginn og byrjuð að hlusta á jólalög, reyndar út af verkefni sem ég er að gera í skólanum en það er sama, það er byrjað að skreyta á fullu í borginni þannig að jólalögin hljóta að fara detta inn á útvarpsstöðvarnar fljótlega, þannig að allir geta farið að syngja með ... Vá okei ég skal hætta það er nú bara 10.nóvember er þaggi..
11/08/2005
Hæ hæ !!
Já mjög góð helgi að baki, við unnum Víking á laugardeginum og er um þar með komnar í fyrsta sætið (Þökk sé FH-stúlkum sem unnu góðan sigur á ÍBV hehe). Síðan var slakað á í rólegheitunum í bústað á laugardagskvöldinu, góður matur og heitur pottur bara æði. Sunnudagurinn var bara afslöppun og tók ég mér alveg frí frá lærdómnum ;) Núna er komið frí í deildinni þangað til eftir áramót og taka landsliðsæfingar við núna í nóvembermánuði.
Það er voða stuð framundan í náminu, ég er að gera jólaútvarpsþátt með Ásu bekkjarsystur minni, síðan er ég að útbúa plakat og svo er bara að fara byggja taugarnar upp fyrir lokadagskrá í Talað mál og framsögn þar sem við eigum að koma fram og flytja smá ávarp og ljóð.... ég er soldið byrjuð að skelfa en maður hefur mjög gott af þessu hehe
En tíminn líður aldeilis hratt ég skaust inn í Nettó í gær hjá mér í mjóddinni og þá var verið á fullu að skreyta jólaskraut úffff ég var ekki alveg að gera mér grein fyrir þessu... prófin nálgast óðfluga og mér finnst önnin bara nýbyrjuð :)
en jæja bless í bili, kveðja Guðbjörg
